Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 30. ágúst 2021 18:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kabak til Norwich á láni (Staðfest)
Mynd: EPA
Ozan Kabak er genginn til liðs við Norwich á láni frá Schalke út tímabilið með möguleika á að kaupa hann fyrir 11 milljónir punda.

Hann gekkst undir læknisskoðun hjá félaginu í dag. Hann verður með tyrkneska landsliðinu sem mætir Montenegro, Gibraltar og Hollandi í undankeppni HM.

„Ég talaði við þjálfarann og ég er mjög hrifinn af verkefninu hans og því sem hann sagði við mig. Ég trúi á hann og hans verkefni. Ég spilaði í Úrvalsdeildinni í fyrra og ég naut þess. Svo ég vil spila þar aftur og þess vegna er ég hér. Ég vil spila í Úrvalsdeildinni og gefa frá mér til liðsins." Sagði Kabak.

Það er talið að Kabak sé síðasti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Norwich í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner