Fotbolti.net
30.08.22 - 12:56
Elvar Geir Magnússon

Hudson-Odoi lánaður til Leverkusen (Staðfest)

Chelsea hefur möguleika á því að kalla Hudson-Odoi til baka í janúarglugganum.

Chelsea hefur möguleika á því að kalla Hudson-Odoi til baka í janúarglugganum.

Canon

Mynd: EPA

Callum Hudson-Odoi, vængmaður Chelsea, er genginn í raðir Bayer Leverkusen á lánssamningi út tímabilið.

Þessi 21 árs enski sóknarleikmaður hefur ekki spilað fyrir Chelsea á þessu tímabili en hann lék 15 leiki í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Leverkusen hafnaði í þriðja sæti þýsku Bundesligunnar á síðasta tímabili og er í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á þessu tímabili.

Árið 2019 gerðu Þýskalandsmeistarar Bayern München 35 milljóna punda tilboð í Hudson-Odoi sem var hafnað,

Hudson-Odoi gerði fimm ára samning við Chelsea 2019 en meiddist svo illa.

Chelsea hefur möguleika á því að kalla Hudson-Odoi til baka í janúarglugganum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.