Fotbolti.net
30.08.22 - 16:00
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Tottenham lánar Reguilon til Atletico (Staðfest)

Tottenham lánar Reguilon til Atletico (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Vinstri bakvörðurinn Sergio Reguilon hefur gengið í raðir Atletico Madrid á lánssamningi út yfirstandandi tímabil.

Spænski landsliðsmaðurinn gekk í raðir Tottenham frá Real Madrid sumarið 2020.

Þessi 25 ára leikmaður spilaði 25 leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og alls leikið 67 leiki í öllum keppnum hjá félaginu.
Hann hefur ekki komið við sögu í fyrstu fjórum leikjum liðsins á þessari leiktíð þar sem samkeppnin er gríðarleg í vængbakverðinum eftir að Ivan Perisic kom á frjálsri sölu í sumar.

Atletico Madrid er ekki með neinn forkaupsrétt á leikmanninum eftir að lánstímanum lýkur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.