Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 30. ágúst 2022 16:30
Elvar Geir Magnússon
Van den Berg gerir nýjan samning við Liverpool og fer á lán til Schalke (Staðfest)
Mynd: EPA
Sepp van den Berg skrifaði undir nýjan langtímasamning við Liverpool áður en hann var lánaður til Schalke í Þýskalandi út þetta tímabil.

Van den Berg er tvítugur hollenskur miðvörður sem lék á lánssamningi með Preston North-End á síðasta tímabili.

Hann hefur leikið fjóra aðalliðsleiki fyrir Liverpool síðan hann kom til félagsins frá PEC Zwolle arið 2019.


Athugasemdir
banner
banner