Real Madrid vill tvo leikmenn Chelsea - Man Utd hefur áhuga á Vlahovic - Bernardo Silva íhugar að fara til Sádi-Arabíu næsta sumar
   þri 30. september 2025 08:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lykilmaður framlengir við KA - „Verið algjörlega frábær"
Lykilmaður skrifar undir.
Lykilmaður skrifar undir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hans Viktor Guðmundsson, lykilmaður í liði KA, hefur framlengt samning sinn við KA um tvö ár. Fyrri samningur hefði runnið út eftir yfirstandandi tímabil en hann er nú samningsbundinn út tímabilið 2027.

„Þetta eru stórkostlegar fréttir en Hans Viktor hefur verið algjörlega frábær frá því hann gekk í raðir KA fyrir sumarið 2024," segir á heimasíðu KA.

Hans Viktor kom til KA frá Fjölni fyrir tímabilið 2024 og hefur verið lykilmaður í liði KA. Hann hefur spilað vel fyrir liðið og var hér á Fótbolti.net valinn besti leikmaður bikarúrslitaleiksins gegn Víkingi í fyrra, en KA vann þann leik. Hann var svo valinn besti leikmaður KA á lokahófi félagsins.

Af heimasíðu KA
Hans sem er nýorðinn 29 ára er stór og stæðilegur miðvörður sem er öflugur í návígjum, fljótur og góður að spila boltanum. Hugarfarið hans er til fyrirmyndar þar sem hann gefur alltaf allt í leikinn og heldur haus þegar illa gengur. Þrátt fyrir að leika í hjarta varnarinnar hefur Hans Viktor skorað fjögur mörk í deild og bikar fyrir KA en í heildina hefur hann nú leikið 57 leiki fyrir félagið í deild, bikar og Evrópu.

Það er ákaflega jákvætt að Hans Viktor sé búinn að skrifa undir nýjan samning við KA og er það lykilskref í undirbúningi liðsins fyrir næsta tímabil að halda honum innan okkar raða. Með frammistöðu sinni með KA hefur hann eðlilega vakið athygli annarra liða og erum við í skýjunum með að halda honum áfram gulum og bláum.
Athugasemdir
banner