30.09.26 - 22:26
Ívan Guðjón Baldursson
Heimir: Einbeittur að fótboltahliðinni

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Heimir Hallgrímsson hefur staðfest að seinni leikur Írlands við Ísrael í Þjóðadeildinni mun fara fram.

TENGT EFNI
Tóku ekki í höndina á Ísraelum - Spila með sorgarbönd
Heimir og lærlingar hans í írska landsliðinu unnu sannfærandi þriggja marka sigur á Ísrael er þjóðirnar mættust á dögunum. Það var mikið umtal í kringum leikinn þar sem Írar héldu kosningu innbyrðis um hvort þeir myndu mæta til leiks eða ekki.
Írsku leikmennirnir kusu um að mæta til leiks en þeir klæddust sorgarböndum, horfðu niður þegar þjóðsöngur Ísraela var spilaður og neituðu að taka í hendur andstæðinga sinna.
Fyrri leikur liðanna fór fram í Ungverjalandi en seinni leikurinn verður leikinn í Serbíu sunnudaginn 4. október. Írsk yfirvöld treysta sér ekki til að hýsa leikinn á írskri grundu.
Írland spilar fyrst heimaleik við Austurríki annað kvöld áður en liðið flýgur til Serbíu.
„Við munum spila báða leikina við Ísrael, það er búið að taka ákvörðun um það. Núna erum við bara einbeittir að fótboltahliðinni," sagði Heimir á fréttamannafundi.
Írska þjóðin hefur verið dugleg að mótmæla þátttöku Íra í leikjunum gegn Ísrael og er búist við mótmælum í leiknum gegn Austurríki. Leikurinn gegn Ísraelum verður leikinn fyrir luktum dyrum í Serbíu.
„Ég er bara einbeittur að fótboltanum, ég læt aðra um að hugsa um að gera viðeigandi öryggisráðstafanir. Við mætum Austurríki sem er hæst allra liða riðilsins á heimslistanum. Ég má ekki leyfa utanaðkomandi látum að hafa áhrif á undirbúning liðsins fyrir mikilvægan fótboltaleik."