Fotbolti.net
30.09.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

Rui Pinto: Mancini tók þátt í svindlinu

Rui Pinto: Mancini tók þátt í svindlinu
Canon

Mynd: EPA

Portúgalinn Rui Pinto er að fara mikinn á X þessa dagana og talar meðal annars um fyrrum fótboltamanninn og núverandi landsliðsþjálfara Ítalíu, Roberto Mancini.
Mancini um City málið: Ekki mitt vandamál
TENGT EFNI

Mancini um City málið: Ekki mitt vandamál

Mancini var þjálfari Manchester City í fjögur ár frá 2009 til 2013 og þáði svimandi háar greiðslur frá félaginu, sem voru að stórum hluta faldar.

Mancini svaraði aldrei spurningum fréttamanna Der Spiegel þegar þeir fínkembuðu gögnin sem Rui Pinto lak í gegnum vefsíðuna Football Leaks fyrir tæpum áratugi síðan.

Hann var á dögunum spurður út í Man City málið sem hefur fengið gífurlega mikla athygli víða um heim. Þar segir Mancini að málið varði sig ekki neitt.

„Þetta er ekki mitt vandamál, þetta er þeirra vandamál," sagði Mancini aðspurður, en Rui Pinto gefur lítið fyrir svör Ítalans.

„Hugmyndin kom kannski frá stjórnendum Manchester City, en gögnin sýna fram á að Mancini vissi nákvæmlega hvað hann var að samþykkja. Það vekur upp stórar siðferðislegar spurningar," segir Rui Pinto meðal annars og vísar í hlekk sem leiðir að samningi Mancini við Man City sem var lekið.

Skoðaðu samninginn.
Rui Pinto: Mancini tók þátt í svindlinu
Canon

Mynd: EPA

Rui Pinto: Mancini tók þátt í svindlinu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.