30.09.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Wright um Man City: Þarf að beita fordæmalausri refsingu í þessu máli

Ian Wright

Mynd: EPA

Ian Wright

Mynd: EPA
Sparkspekingurinn Ian Wright telur að það þurfi að refsa Manchester City harðlega fyrir brot á fjárhagsreglum deildarinnar.

TENGT EFNI
Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
Wright ræddi málið á ITV í tengslum við landsleik Englands og Tékklands.
Enska úrvalsdeildin hefur staðfest niðurstöðuna í Man City-málinu, en félagið var dæmt sekt í öllum nema einum ákærulið. Félagið hefur frest til 2. október til að áfrýja niðurstöðunni, en enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um refsingu.
„Þetta er svindl í gríðarlegum mæli. Það er súrrealískt að sjá þetta svart á hvítu. Það er eiginlega ekki hægt að tala um Man City án þess að ræða það sem er í gangi, sérstaklega vegna þess hversu ótrúlega góðir þeir hafa verið.“
„Mín tilfinning er sú að það þurfi að beita fordæmalausri refsingu í þessu máli,“ sagði Wright.
Wright telur jafnframt að langt sé í land áður en endanleg niðurstaða fæst.
„Þetta er gríðarlega stór dagur fyrir ensku úrvalsdeildina. Hún er að takast á við heilt ríki. Nú má búast við miklum málaferlum og ég held að þetta eigi eftir að taka mjög langan tíma. Þetta er mjög sorglegt,“ sagði Wright.