Fotbolti.net
30.12.19 - 10:00
Elvar Geir Magnússon

Lið vikunnar í enska - Trent, De Bruyne og Martial

Öll 20 lið ensku úrvalsdeildarinnar léku tvisvar á fjögurra daga kafla og Garth Crooks, sparkspekingur BBC, horfir til tveggja umferða þegar hann velur úrvalslið vikunnar.
Markvörður: Ben Foster (Watford) - Eftir gott gengi í síðustu leikjum á Watford von um að ná að komast upp úr fallsætunum. Markvörðurinn reynslumikli er algjör lykilhlekkur.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Trent Alexander-Arnold (Liverpool) - Var hreinlega stórkostlegur þegar Liverpool slátraði Leicester í toppslagnum á öðrum degi jóla.

Varnarmaður: Harry Maguire (Man Utd) - Var hrikalega öflugur gegn Newcastle og Burnley.

Varnarmaður: James Tomkins (Crystal Palace) - Fær sjaldan hrósið sem hann á skilið. Skoraði í jafntefli gegn Southampton og var traustur í sigri gegn West Ham.

Varnarmaður: Mason Holgate (Everton) - Everton hefur gengið mun betur með Holgate innanborðs en varnarmaðurinn ungi hefur leikið fantavel að undanförnu.

Miðjumaður: Jorginho (Chelsea) - Innkoma hans breytti leiknum gegn Arsenal. Hann skoraði fyrra markið í sigri þeirra bláu þó spurning sé hvort hann hefði átt að fá rautt áður.

Miðjumaður: Kevin de Bruyne (Man City) - Hefur komið með beinum hætti að nítján mörkum í ensku úrvalsdeildinni þetta tímabilið

Miðjumaður: Adama Traore (Wolves) - Sá til þess að Úlfarnir náðu að snúa málunum sér í hag í sigrinum gegn Manchester City.

Sóknarmaður: Dominic Calvert-Lewin (Everton) - Hefur verið á eldi og virðist skyndilega ekki geta hætt að skora.

Sóknarmaður: Anthony Martial (Man Utd) - Hefur notið sín vel um jólin og brosað! Skoraði í sigrum gegn Newcastle og Burnley.

Sóknarmaður: Harry Kane (Tottenham) - Aðeins Aguero og Shearer hafa náð að skora fleiri mörk í fyrstu 200 úrvalsdeildarleikjum sínum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.