Hakim Ziyech verður áfram hjá Chelsea eftir að félagsskiptin hans til PSG gengu ekki eftir.
Hann var á leið til PSG í kvöld en Bruno Salomon, franskur fréttamaður, greinir frá því að Chelsea hafi þrisvar sinnum sent ranga pappíra svo viðræðurnar strönduðu.
Það hefur verið nóg að gera á skrifstofu Chelsea í kvöld en liðið er væntanlega að ganga frá samningi við Enzo Fernandez frá Benfica.
Ben Jacobs hjá CBS segir að Ziyech hafi gert allt til að koma þessu í gegn og hafi boðist til að borga með sér til að þetta myndi ganga hraðar fyrir sig.
Athugasemdir