John Andrews: Stelpurnar héldu alltaf áfram
Auglýsing

John Henry var ánægður með hugarfarið og andann sem liðið sitt sýndi í kvöld.

Mynd: Völsungur

Þór/KA vann í kvöld sannfærandi 7-0 heimasigur á Völsungi í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna. Þór/KA leiddi 3-0 í hálfleik og gerði svo algjörlega út um leikinn með þremur mörkum í viðbót á fyrstu tíu mínútum seinni hálfleiks.
Lestu meira um Þór/KA 7-0 Völsungur hér.

John Henry Andrews, þjálfari Völsungs, var í viðtali við Fótbolti.net i kvöld.
„Gæðamunurinn á liðunum í kvöld var sýnilegur. Þór/KA er með sterkt lið," sagði John Henry eftir leikinn í kvöld.
„Uppleggið í kvöld var að nýta veikleika sem við töldum vera á Þór/KA liðinu. Við náðum ekki að koma okkur í þau svæði sem við ætluðum nógu oft. 2-0 eftir 25 mínútur var erfið staða."
„Það voru augnablik í seinni hálfleik þar sem við náðum aðeins að stríða þeim."
„Við erum með ungt lið og erum ekki með eiginlegt markmið. Við ætlum að spila góðan og aðlaðandi bolta og gefa öllum liðum leik."
„Okkar markmið er að okkar stelpur nái að láta ljós sitt skína og það sem gerist gerist."
„Stelpurnar héldu alltaf áfram og ég er ánægður með andann og hugarfarið í mínum stelpum."
Viðtalið við John má sjá í heild sinni efst í spilaranum. Hljóðgæðin eru á tímapunktum ekkert sérstök, því miður.