Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 31. maí 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ashworth til Newcastle (Staðfest) - Weir fyllir í skarðið
Mynd: FA

Newcastle United er búið að staðfesta ráðningu Dan Ashworth sem yfirmanns íþróttamála hjá félaginu.


Newcastle komst að samkomulagi við Brighton og kaupir hinn 51 árs Ashworth, sem er gríðarlega hátt skrifaður í fótboltaheiminum, af félaginu.

Ashworth starfaði áður fyrir enska knattspyrnusambandið og býr yfir mikilli þekkingu. Hann hefur fengið gríðarlega mikið lof fyrir starf sitt hjá Brighton eftir þrjú ár hjá félaginu.

Brighton er búið að ráða David Weir, fyrrum leikmann Rangers og Everton, í hans stað. Weir hefur sinnt ýmsum störfum innan félagsins og starfaði samhliða Ashworth í vor. 


Athugasemdir
banner
banner
banner