Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 31. maí 2022 14:45
Brynjar Ingi Erluson
Ivan Perisic til Tottenham (Staðfest) - Gerir tveggja ára samning
Mynd: Tottenham Hotspur
Króatíski vængmaðurinn Ivan Perisic er genginn í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham Hotspur og kemur hann á frjálsri sölu frá Inter á Ítalíu.

Perisic er 33 ára gamall og hefur spilað með Inter síðustu sjö ár en samningur hans við félagið átti að renna út um mánaðarmótin.

Tottenham hefur verið í viðræðum við hann síðustu vikur og náðist samkomulag á dögunum. Hann stóðst læknisskoðun áður en hann skrifaði undir tveggja ára samning.

Perisic og Antonio Conte endurnýja því kynni sín en Conte þjálfaði leikmanninn hjá Inter frá 2019 til 2021.

Króatíski landsliðsmaðurinn hefur áður spilað fyrir félög á borð við Wolfsburg, Borussia Dortmund, Bayern München og Club Brugge.


Athugasemdir
banner
banner
banner