Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 31. maí 2022 10:30
Brynjar Ingi Erluson
PSG kaupir Nuno Mendes frá Sporting (Staðfest)
Nuno Mendes í leik með PSG
Nuno Mendes í leik með PSG
Mynd: EPA
Franska félagið Paris Saint-Germain hefur fest kaup á portúgalska vinstri bakverðinum Nuno Mendes en hann kemur frá Sporting Lisbon.

Mendes, sem er 19 ára gamall, gekk í raðir PSG á láni frá Sporting fyrir síðustu leiktíð með möguleika á að geta keypt hann fyrir 40 milljónir evra.

Þessi hæfileikaríki leikmaður spilaði 37 leiki fyrir PSG í öllum keppnum og lagði upp tvö mörk.

Franska félagið tilkynnti svo í dag að það væri búið að festa kaup á Mendes og gerir hann samning til 2026.

Þetta eru fyrstu kaup PSG í sumar og svo sannarlega ekki þau síðustu.


Athugasemdir
banner
banner
banner