Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 15:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guðlaugur Victor og félagar upp í efstu deild
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Lokaumferðin í næst efstu deild í Danmörku fór fram í dag en Ísak Snær Þorvaldsson og félagar í Lyngby voru þegar búnir að tryggja sér titilinn.

Guðlaugur Victor Pálsson og félagar í Horsens þurftu hins vegar á sigri að halda til að fylgja Lyngby upp í efstu deild.

Guðlaugur Victor spilaði allan leikinn þegar Horsens lagði Kolding 1-0. Ari Leifsson var í byrjunarliði Kolding. Ísak er staddur í Japan með íslenska landsliðinu og var því ekki með þegar Lyngby tapaði 2-1 gegn Esbjerg. Breki Baldursson var ekki með Esbjerg.

Esbjerg endaði í 3. sæti með 52 stig, tveimur stigum á eftir Horsens. Kolding endaði í 6. sæti með 38 stig.

Kolbeinn Þórðarson kom inn á í fyrri hálfleik þegar Gautaborg vann Vaasteras 5-4 í mögnuðum leik í sænsku deildinni. Hlynur Freyr Karlsson var ekki með Brommapojkarna þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Degerfors. Gautaborg er í 14. sæti með 10 stig eftir tíu umferðir en Brommapojkarna er í 7. sæti með 15 stig.
Slapp