Fotbolti.net
31.07.21 - 09:00
Victor Pálsson

Man Utd lánar ungan leikmann til Hull (Staðfest)

Man Utd lánar ungan leikmann til Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur lánað leikmann að nafni Di'Shon Bernard til Hull út næstu leiktíð.
Þetta staðfesti Man Utd í gær en Bernard er 20 ára gamall varnarmaður og þykir ansi efnilegur.

Hann spilaði með Salford City í láni á síðustu leiktíð og spilaði þá 25 leiki ásamt því að skora tvö mörk.

Bernard á að baki einn leik fyrir aðallið Man Utd en hann kom tímabili 2019/2020 í Evrópukeppni.

Bernard mun nú reyna fyrir sér í Championship-deildinni sem er næst efsta deild Englands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.