Mauricio Pochettino, stjóri Paris Saint-Germain, hefur ekki heyrt það frá Kylian Mbappe að hann vilji ekki skrifa undir nýjan samning.
Mbappe á aðeins eitt ár eftir af samningnum sínum við PSG og er talað um að hann gæti farið.
Mbappe er aðeins 22 ára gamall og er það hans draumur að spila með spænska liðinu Real Madrid í framtíðinni.
„Það eru samræður okkar á milli en hann hefur ekki rætt um það við mig," sagði Pochettino um hvort Mbappe hafi neitað að skrifa undir samning.
Það gæti vel verið að Mbappe sé að bíða eftir hærri launatékka eins og liðsfélagi hans Neymar gerði.
Athugasemdir