Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 31. júlí 2022 22:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Chelsea tilbúið að bjóða leikmenn í skiptum fyrir Fofana
Mynd: Getty Images

Chelsea er í leit að miðverði en liðið hefur misst bæði Andreas Christensen (til Barcelona) og Antonio Rudiger (til Real Madrid).


Kalidou Koulibaly gekk til liðs við Chelsea frá Napoli í sumar en enska félagið hefur mistekist að krækja í Jules Kounde frá Sevilla og Nathan Ake frá Manchester City.

Kounde fór til Barcelona en Ake verður að öllum líkindum áfram hjá City.

Samkvæmt heimildum Sky Sports er Chelsea tilbúið að bjóða Leicester leikmenn í skiptum fyrir Wesley Fofana auk þess að borga væna summu en Leicester er talið hafa sett allt að 85 milljón punda verð miða á leikmanninn en hann á fimm ár eftir af samningi sínum.


Athugasemdir
banner