Fotbolti.net
31.07.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Æfingaleikur: Leeds hafði betur gegn Sunderland

Æfingaleikur: Leeds hafði betur gegn Sunderland
Canon

Mynd: Leeds

Leeds United vann sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu í nótt þegar liðið mætti Sunderland í Bandaríkjunum.

Liðin eru á æfingamóti ásamt Liverpool og Wrexham. Leeds tapaði gegn Wrexham í fyrsta leik og Sunderland tapaði gegn Liverpool.
Lukas Nmecha skoraði eina mark leiksins fyrir Leeds á áttundu mínútu.

Ao Tanaka vann boltann á miðjunni og hann barst til Nmecha sem sá að Melker Ellboorg, markvörður Sunderland, var illa staðsettur. Hann tók skotið af löngu færi og boltinn fór í stöngina og inn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.