Fotbolti.net
31.07.26 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fór á reynslu til Noregs en klárar tímablið í Þorlákshöfn (Staðfest)

Fór á reynslu til Noregs en klárar tímablið í Þorlákshöfn (Staðfest)
Canon

Mynd: Aðsent

Lengjudeildin
Markvörðurinn Haukur Logi Tryggvason fékk félagaskipti til Ægis rétt fyrir gluggalok og mun klára tímabilið í Lengjudeildinni í Þorlákshöfn.

Haukur er uppalinn í Stjörnunni, fæddur árið 2007 og hefur varið mark 2. flokks KR í sumar.

Hann var árið 2024 hjá Víkingi. Á síðasta tímabili var hann nokkrum sinnum í hóp KR í Bestu deildinni. Hann fer á láni frá KR til Ægis.
Haukur var á reynslu hjá norska félaginu Rana FK í síðustu viku. Rana er í norsku C-deildinni.

Hjá Ægi er fyrir KR-ingurinn Ómar Castaldo Einarsson en hann hefur staðið vaktina í marki liðsins í sumar.

Ægir er í botnsæti Lengjudeildarinnar og á næst leik gegn ÍR næsta fimmtudag.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.16+2033
2Fylkir16+1233
3Afturelding15+1931
4HK16+928
5Njarðvík16+326
6Grótta14+122
7Vestri15-521
8Leiknir R.16-519
9Grindavík16-417
10ÍR16-916
11Völsungur16-1711
12Ægir16-248
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.