Fotbolti.net
31.07.26 - 08:17
Elvar Geir Magnússon

Silva í læknisskoðun hjá Bournemouth

Antonio Silva.

Antonio Silva.

Canon

Mynd: EPA

Benfica hefur samþykkt tilboð Bournemouth í miðvörðinn Antonio Silva en upphæðin gæti farið upp í 26 milljónir punda.

Silva, sem er 22 ára, er uppalinn hjá Benfica og hefur fest sig í sessi sem lykilmaður í aðalliðinu. Hann er góður á boltann og er talinn öflugur kostur til að fylla skarð Marcos Senesi sem fór til Tottenham.
Portúgalski landsliðsmaðurinn er á leið í læknisskoðun. Hann á 20 landsleiki en var ekki í HM hópnum.

Þjóðverjinn Marco Rose er nýr stjóri Bournemouth.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.