31.07.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Casemiro upplifir drauminn: Messi er guð fótboltans


Mynd: Inter Miami


Mynd: Inter Miami
Casemiro gekk til liðs við Inter Miami frá Man Utd í sumar en hann spilaði sinn fyrsta leik í síðustu viku í 1-0 sigri á CF Montreal.
Casemiro spilaði með Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid á sínum tíma. Nú er hann orðinn liðsfélagi Lionel Messi. Casemiro fór mjög fögrum orðum um Messi.
Casemiro spilaði með Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid á sínum tíma. Nú er hann orðinn liðsfélagi Lionel Messi. Casemiro fór mjög fögrum orðum um Messi.
„Messi olli mér miklum vandræðum, auðvitað hefur mig dreymt um að spila með honum, ég vildi alltaf spila með þeim bestu. Ég gat aldrei stoppað hann, ég þurfti alltaf hjálp frá liðsfélögunum. Ég er mjög ánægður að vera við hlið hans núna og vil halda áfram að vinna titla með honum," sagði Casemiro.
„Ég vil njóta þess að vera við hlið hans, hjálpa honum og gera hann enn betri. Hann er einn af guðum fótboltans, ef ekki sjálfur guð fótboltans, ég vil hjálpa honum."
„Ég vil njóta þess að vera við hlið hans, hjálpa honum og gera hann enn betri. Hann er einn af guðum fótboltans, ef ekki sjálfur guð fótboltans, ég vil hjálpa honum."
