31.07.26 - 08:35
Elvar Geir Magnússon
FIFA: Það er enginn að selja fótboltann

Infantino ætlar að halda áfram með áætlanir sínar.

Mynd: EPA

FIFA segir að enginn sé að selja fótboltann og að sambandið muni halda áfram með áætlun sína um að hleypa að utanaðkomandi fjárfestingum.
Í yfirlýsingu sem gefin var út í morgun segir FIFA að þetta ferli hafi verið truflað með „röngum fjölmiðlafréttum“.

TENGT EFNI
Einróma samþykkt hjá UEFA að sniðganga HM ef áætlanir FIFA ná fram að ganga
Öll aðildarlönd UEFA, fótboltasambands Evrópu, samþykktu í gær að sniðganga HM ef áætlanir FIFA myndi ná fram að ganga. Concacaf og asíska sambandið gengu ekki eins langt en mótmæla þó áætlununum.
„Við virðum ábendingar og áhyggjur sem komu fram opinberlega og staðfestum skuldbindingu okkar við opið og lýðræðislegt samráð. Við munum halda áfram með þetta ferli til að tryggja að hvert aðildarsamband geti greitt atkvæði á grundvelli staðreynda. Enginn er að selja fótboltann. Þetta er eitthvað sem FIFA myndi aldrei íhuga," segir í yfirlýsingu FIFA.