Fotbolti.net
31.07.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Slot orðaður við Sádi-Arabíu

Slot orðaður við Sádi-Arabíu
Canon

Mynd: EPA

Arne Slot, fyrrum stjóri Liverpool, er efstur á óskalista sádi arabíska félagsins Al-Ahli samkvæmt heimildum TalkSPORT. Félagið vill að hann taki við af Matthias Jaissle sem er sagður vera taka við Newcastle.
Slot hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá Liverpool í maí. Hann hefur verið orðaður við lið á borð við Fulham, Milan og hollenska landsliðið.

Al-Ahli hefur einnig augastað á Vitor Pereira, fyrrum stjóra Wolves og Nottingham Forest.

Pereira þekkir vel til í Sádi-Arabíu en hann stýrði Al-Shabab áður en hann tók við Wolves árið 2024 og þá stýrði hann Al-Ahli árið 2013.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.