31.07.26
Hvar eru þeir nú? Enska liðið sem tapaði fyrir Íslandi
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
„Þetta var versta frammistaða sem ég hef nokkurn tímann séð frá Englandi," sagði markahrókurinn Alan Shearer á breska ríkisútvarpinu að kvöldi 27. júní 2016.
Fyrir Íslendinga var þetta eitt magnaðasta fótboltakvöld sögunnar. Fyrir Englendinga var þetta algjör martröð.
Í Hreiðrinu í Nice í Frakklandi skrifaði íslenska landsliðið eftirminnilegasta kafla í íslenskri fótboltasögu þegar það lagði England 2-1 í 16-liða úrslitum Evrópumótsins. Að fá England í útsláttarkeppni þótti draumur. Að slá það út var eitthvað sem fæstir þorðu að ímynda sér.
Flestir muna nákvæmlega hvernig íslenska liðið leit út þetta kvöld. En hvernig leit enska liðið eiginlega út? Hvaða leikmenn voru í byrjunarliðinu, hvað varð um þá eftir þetta sögulega tap? Við förum yfir enska liðið sem féll fyrir Íslandi þetta ógleymanlega sumarkvöld í Nice.