Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 31. ágúst 2021 17:47
Victor Pálsson
Ampadu framlengir við Chelsea - Lánaður til Venezia (Staðfest)
Mynd: EPA
Ethan Ampadu hefur skrifað undir nýjan samning við stórlið Chelsea en þetta var staðfest nú rétt í þessu.

Ampadu er afar efnilegur leikmaður en hann spilaði með Sheffield United á láni á síðasta tímabili.

Ampadu er landsliðsmaður Wales en hann mun ekki spila í London eða á Englandi á leiktíðinni.

Íslendingalið Venezia hefur fengið hann lánaðan út tímabilið en þar leikur Arnór Sigurðsson hlutverk í aðalliðinu.

Ampadu skrifaði undir þriggja ára framlengingu og er samningsbundinn til 2025.

Athugasemdir
banner
banner