Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 31. ágúst 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Drinkwater á láni til Reading (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Danny Drinkwater er farinn til Reading á láni frá Chelsea út þessa leiktíð.

Drinkwater var lykilmaður í liði Leicester tímabilið 2015/16 sem varð enskur meistari. Hann var keyptur til Chelsea tímabilið 2017/18 og hefur spilað lítinn fótbolta síðan.

Drinkwater lék síðast með Kasımpaşa í Tyrklandi á láni þar sem hann lék 11 leiki.

Reading leikur í næst efstu deild á Englandi, Championship deildinni, liðið er í 21. sæti með þrjú stig eftir fimm leiki.
Athugasemdir
banner