Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 31. ágúst 2021 17:46
Brynjar Ingi Erluson
Emerson Royal til Tottenham (Staðfest)
Emerson Royal verður í treyju númer 12
Emerson Royal verður í treyju númer 12
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur var rétt í þessu að staðfesta komu brasilíska hægri bakvarðarins Emerson Royal frá Barcelona. Hann gerir fimm ára samning.

Emerson er 22 ára gamall en hann var keyptur af bæði Real Betis og Barcelona árið 2019.

Betis var með hann fyrstu þrjú tímabilin en Barcelona greiddi svo Betis níu milljónir evra til að fá hann fyrir þetta tímabil.

Hann kom í júní en nú tveimur mánuðum síðar er hann farinn til Tottenham fyrir 30 milljónir evra.

Emerson gerði fimm ára samning við Tottenham og var hann kynntur á vef félagsins í dag.

Hann mun spila í treyju númer 12 en Tottenham bíður nú eftir að hann fái atvinnuleyfi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner