Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 31. ágúst 2021 23:58
Victor Pálsson
Helder Costa til Valencia (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Vængmaðurinn Helder Costa er genginn í raðir Valencia á Spáni frá Leeds United á Englandi.

Þetta var staðfest á gluggadeginum í kvöld en Costa gerir lánssamning við Valencia út tímabilið.

Costa er 27 ára gamall en hann gekk endanlega í raðir Leeds frá Wolves í fyrra eftir að hafa spilað þar á láni.

Costa lék 14 deildarleiki fyrir Leeds á síðustu leiktíð og er því ekki fyrsti maður á blað hjá Marcelo Bielsa.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner