Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 31. ágúst 2021 17:18
Brynjar Ingi Erluson
Leicester fær Lookman á láni frá Leipzig (Staðfest)
Ademola Lookman í Leicester-treyjunni
Ademola Lookman í Leicester-treyjunni
Mynd: Heimasíða Leicester
Enski sóknarmaðurinn Ademola Lookman er mættur til Leicester City á láni frá RB Leipzig.

Lookman er 23 ára gamall og uppalinn í Charlton en fór til Everton árið 2017.

Hann var lánaður til Leipzig árið 2018 og keyptur aðeins ári síðar en þetta verður önnur leiktíðin í röð þar sem hann spilar í ensku úrvalsdeildinni á láni.

Lookman var á láni hjá Fulham á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði fjögur mörk í 35 leikjum.

Hann er nú aftur mættur í ensku úrvalsdeildina og að þessu sinni til Leicester en hann verður á láni út leiktíðina.
Athugasemdir
banner
banner
banner