Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 31. ágúst 2021 12:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Norwich fær hinn norska Normann (Staðfest)
Mynd: Norwich
Norwich hefur fengið norska miðjumanninn Mathias Normann á láni frá Rostov út tímabilið.

Norwich getur svo keypt Norðmaninn af Rostov í kjölfar lánssamningsins.

Normann er 25 ára og hefur verið hjá Rostov síðan 2019. Hann er uppalinn hjá Lofoten í Noregi en var hjá Bodö/Glimt á árunum 2013-2017. Þá gekk hann í raðir Brighton en lék aldrei keppnisleik með liðinu.

Hann á að baki sjö A-landsleiki fyrir Noreg.
Athugasemdir
banner