Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 31. ágúst 2021 20:52
Victor Pálsson
Odsonne Edouard til Crystal Palace (Staðfest)
Crystal Palace hefur styrkt sig verulega á gluggadeginum og fékk til sín öflugan framherja í kvöld.

Framherjinn umtalaði er Odsonne Edouard en hann hefur leikið með Celtic undanfarin þrjú ár.

Edouard kostar Palace um 18,5 milljónir punda og er hugsaður sem byrjunarliðsmaður á leiktíðinni.

Edouard er 23 ára gamall framherji sem skoraði 57 mörk í 94 deildarleikjum með Celtic.

Everton hafði einnig sýnt leikmanninum áhuga en hann mun þess í stað leika á Selhurst Park.

Leikmaðurinn gerir fjögurra ára samning við Palace.


Athugasemdir
banner