Fotbolti.net
31.08.21 - 16:51
Brynjar Ingi Erluson

RB Leipzig kaupir Moriba frá Barcelona (Staðfest)

Ilaix Moriba skrifaði undir fjögurra ára samning

Ilaix Moriba skrifaði undir fjögurra ára samning

Canon

Mynd: Heimasíða Leipzig

Spænski miðjumaðurinn Ilaix Moriba samdi í dag við þýska félagið RB Leipzig en hann kemur frá Barcelona. Samningurinn er til næstu fjögurra ára.
Moriba er 18 ára gamall miðjumaður og kemur úr unglingastarfinu hjá Barcelona.

Hann steig sín fyrstu skref með aðalliðinu á síðustu leiktíð og er talinn einn efnilegasti leikmaður Spánar.

Börsungar eru í fjárhagsvandræðum og hafa neyðst til að selja til að rétta skútuna af.

Félagið samþykkti 22 milljón evra tilboð Leipzig í Moriba og skrifaði hann undir fjögurra ára samning í dag. Sex milljónir evra eru þó árangurstengdar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.