Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 31. ágúst 2021 22:55
Victor Pálsson
Sarabia lánaður til Portúgals (Staðfest)
Sarabia hjá Sevilla.
Sarabia hjá Sevilla.
Mynd: Getty Images
Pablo Sarabia er genginn í raðir Sporting Lisbon í Portúgal en hann kemur þangað frá Paris Saint-Germain.

Sarabia er 29 ára gamall miðjumaður en hann gerir lánssamning við Sporting út tímabilið.

Sarabia kom til PSG frá Sevilla árið 2019 og hefur spilað 50 deildarleiki og gert 11 mörk.

Hann er einnig landsliðsmaður Spánar og á að baki níu leiki fyrir þjóð sína ásamt því að skora þrjú mörk.

Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Sporting sem er meistari í Portúgal.
Athugasemdir
banner
banner