Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 31. ágúst 2021 21:56
Victor Pálsson
Tomiyasu til Arsenal (Staðfest)
Mynd: EPA
Arsenal hefur styrkt sig á lokadegi félagaskiptagluggans en liðið fékk til sín varnarmann í kvöld.

Varnarmaðurinn sem umræðir heitir Takehiro Tomiyasu og spilaði með Bologna síðustu tvö árin.

Tomiyasu var orðaður við Tottenham fyrr í sumar en gengur í raðir Arsenal fyrir 23 milljónir evra.

Japaninn var öflugur með Bologna á síðustu leiktíð og er einnig mikilvægur hlekkur í landsliði Japans.

Tomiyasu kom til Ítalíu árið 2019 en hann hafði fyrir það leikið í Belgíu og fyrir það í heimalandinu.

Tomiyasu getur spilað í bæði hægri bakverði og miðverði.
Athugasemdir
banner
banner
banner