Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 31. ágúst 2021 19:40
Victor Pálsson
West Ham fær annan tékknenskan landsliðsmann (Staðfest)
Mynd: EPA
West Ham hefur bætt við sig Tékka fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni.

West Ham hefur gert vel þegar kemur að tékknenskum leikmönnum en þeir Vladimir Coufal og Tomas Soucek hafa leikið vel fyrir liðið.

Nú er þriðji Tékkinn mætur en hann ber nafnið Alex Kral og lék með Spartak Moskvu í Rússlandi.

Kral spilaði með Tékkum á EM í sumar og var þar ásamt Soucek og Coufal í liðinu.

Kral skrifar undir lánssamning við West Ham og getur liðið svo keypt hann næsta sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner