Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 31. ágúst 2021 17:11
Brynjar Ingi Erluson
Williams framlengdi við Liverpool til 2026 - Lánaður til Swansea (Staðfest)
Rhys Willams spilar í ensku B-deildinni á þessari leiktíð
Rhys Willams spilar í ensku B-deildinni á þessari leiktíð
Mynd: Heimasíða Swansea
Enski varnarmaðurinn Rhys Williams framlengdi í dag samning sinn við Liverpool til 2026. Hann mun þá spila þessa leiktíð á láni hjá Swansea í B-deildinni.

Williams er tvítugur miðvörður en hann fékk mikla ábyrgð á síðustu leiktíð og spilaði nítján leiki með aðalliði Liverpool.

Mikil meiðsli voru í vörn Liverpool og spilaði Williams því fleiri leiki en hann bjóst við.

Það gerði hann vel og hjálpaði enska félaginu að ná Meistaradeildarsæti.

Williams gerði fimm ára samning við Liverpool í dag og fór svo strax á lán til Swansea í ensku B-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner