Jeffsy eftir stærsta sigur sumarsins: Bjóst kannski ekki við 5-0


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var okkar besta frammistaða í sumar. Varnarlega og sóknarlega. Það gekk allt upp í dag. Frábær leikur og ég er mjög stoltur af þeim. Þeir gerðu allt sem við báðum um. Undirbúningurinn gekk mjög vel. Ég bjóst við góðri frammistöðu en kannski ekki 5-0. Frábær leikur og ég er mjög ánægður.“ sagði Ian Jeffs, þjálfari Þróttar, eftir 5-0 sigur á Grindavík.
Þróttarar áttu frábæran dag í dag og Jeffsy talar um það að Þróttur hafi átt leikinn.
„Ég upplifði það þannig að við áttum leikinn í dag frá fyrstu mínútu. Við vorum mjög skapandi. Allir börðust eins og ljón og við vorum mjög þéttir. Við vorum að vinna boltann á þeim svæðum sem við vorum búnir að tala um fyrir leik. Virkilega góður leikur í dag og ég er ánægður með strákana.“
Sam Hewson spilaði fyrsta leikinn sinn í dag eftir meiðsli og Ian Jeffs var mjög ánægður með að fá fyrirliðann sinn til baka.
„Við erum búnir að sakna Hewsy og Iaro. Tveir af okkar bestu mönnum í fyrra og alvöru gæði sem þeir eru með. Við erum búnir að sakna þá tvo og þeir sýndu okkur í dag hvað þeir geta hjálpað okkur með reynslunni og gæðunum sem þeir hafa.“
Þetta var fyrsti leikur Sam Hewson eftir meiðsli en hann virtist hafa farið meiddur af velli. Ian Jeffs var spurður út í það nánar.
„Hann er ekki búinn að spila í u.þ.b. mánuð. Seinasti leikurinn hans var gegn Aftureldingu og hann meiddist í þeim leik. Hann var ekki búinn að spila í fjóra til fimm leiki á undan þeim leik. Hann er ekki búinn að spila mikið í sumar en hann er kominn til baka.“ Jeffsy bætti svo við að hann myndi aldrei spila meira en klukkutíma í dag.
Jeffsy talaði einnig um það að Jörgen væri búinn að vera með ælupest í vikunni og þess vegna var hann tekinn útaf eftir tæpan klukkutíma leik.
„Jörgen fór einnig af velli þar sem hann var búinn að vera með ælupest og það sýnir hversu geggjaður karakter hann er að taka klukkutíma í dag.“
Hinrik skoraði þrjú og sótti vítaspyrnu fyrir Þrótt í dag en Jeffsy var hæstánægður með hann í dag.
„Hann var geggjaður í dag. Það hafa verið miklar framfarir í hans leik í sumar. Það sem hann gefur liðinu án boltans og með boltans er bara geggjað. Hann átti þetta skilið í dag.“
Rétt áður en Jeffsy var spurður um stuðninginn sem Þróttur fékk í dag kom maður upp að honum og kallaði hann „goðsögn!“. En Jeffsy var engu að síður mjög sáttur með stuðninginn í dag.
Jeffsy var spurður að lokum um hvort Avis völlurinn væri klár fyrir lokaleikinn gegn Aftureldingu og afhverju hann hefur ekki verið klár í sumar.
„Ég get ekki alveg svarað því hvort við verðum komnir með keppnisleyfi þá, gegn Aftureldingu. Það vantar klukku og varamannaskýlið. Það var líka eitthvað með vökvunarkerfið. Vonandi verður það klárt. Það væri geggjað að taka lokaleikinn hérna á Avis-vellinum en það verður bara að fá að koma í ljós.“ sagði Ian Jeffs, þjálfari Þróttar, að lokum eftir 5-0 sigur á Grindavík í dag.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.








