31.08.26 - 10:38
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu hræðilega slysalegt mark sem ÍR fékk á sig á Húsavík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Völsungur vann gríðarlega mikilvægan sigur á ÍR 3-1 í Lengjudeildinni um helgina. Völsungar eiga því von um að halda sæti sínu í deildinni en ÍR er í fallhættu fyrir lokaumferðina.
ÍR komst yfir í leiknum en Völsungur náði að jafna og snúa forystunni sér í vil. Á 74. mínútu gerði Vilhelm Þráinn Sigurjónsson markvörður ÍR hrikaleg mistök.
Hann lagði boltann frá sér án þess að vita af Elfari Árna Aðalsteinssyni fyrir aftan sig. Elfar hirti af honum boltann, lagði hann fyrir Sergio Parla sem skoraði auðveldlega í tómt markið, Einstaklega klaufalegt og vendipunktur leiksins.
Völsungur innsiglaði sigurinn í uppbótartíma en hér að neðan má sjá þetta ótrúlega slysalega mark.

TENGT EFNI
Elfar Árni og Arnar Pálmi: Vera eins og minkur til að komast í boltann
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 21 | +33 | 45 |
| 2 | Þróttur R. | 21 | +23 | 40 |
| 3 | Fylkir | 21 | +14 | 40 |
| 4 | HK | 21 | +11 | 35 |
| 5 | Njarðvík | 21 | +8 | 35 |
| 6 | Leiknir R. | 21 | +2 | 28 |
| 7 | Grótta | 21 | -5 | 27 |
| 8 | Vestri | 21 | -11 | 27 |
| 9 | ÍR | 21 | -7 | 25 |
| 10 | Grindavík | 21 | -10 | 24 |
| 11 | Völsungur | 21 | -14 | 23 |
| 12 | Ægir | 21 | -44 | 8 |