Fotbolti.net
31.10.18 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Ísak Snær þreytti frumraun með U23 liði Norwich

Ísak Snær þreytti frumraun með U23 liði Norwich
Canon

Mynd: .

Ísak Snær Þorvaldsson spilaði sinn fyrsta leik með U23 ára liði Norwich í fyrradag.

Ísak, sem er einungis 17 ára, spilaði þá með U23 ára liðinu í 4-0 tapi gegn Fulham.

Hann spilaði í fremstu víglínu Norwich í leiknum.
Undanfarin tvö ár hefur Ísak verið á mála hjá Norwich og spilað með U16 og U18 ára liðum félagsins.

Ísak var áður á mála hjá Aftureldingu en hann hefur leikið með U17, U18 og U19 ára landsliði Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.