Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 31. október 2020 08:00
Elvar Geir Magnússon
Hinn sautján ára Pedri fær hrós frá Koeman
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Barcelona, hefur á öllum þjálfaraferli sínum verið duglegur við að gefa ungum leikmönnum tækifæri.

Hinir sautján ára gömlu Pedri og Ansu Fati eru að fá stór hlutverk og einnig bandaríski bakvörðurinn Sergino Dest sem er nítján ára gamall.

Pedri, sem heitir fullu nafni Pedro González López, kom frá Las Palmas í sumar og hefur heillað með frammistöðu sinni. Í sigrinum gegn Juventus var sóknarmiðjumaðurinn ungi valinn maður leiksins.

Hann lék úti vinstra megin og Koeman fór fögrum orðum um hann eftir leikinn.

„Pedri hefur heillað, hann hefur sýnt sterkan persónuleika og er mjög jarðbundinn. Hann verður frábær leikmaður fyrir Barcelona," sagði Koeman eftir frammistöðu Pedri í Tórínó.

Hér að neðan má sjá svipmyndir frá Pedri í leiknum.


Athugasemdir
banner
banner
banner