FH hefur fengið Aldísi Guðlaugsdóttur í sínar raðir frá Val. Aldís er 18 ára gömul, hún varði mark FH seinni hluta tímabilsins í sumar og hjálpaði liðinu að vinna sér sæti í Bestu deildinni.
Aldísi kom á láni um miðbik móts og leysti Fanneyju Ingu Birkisdóttur af hólmi, en Fanney hafði verið á láni hjá FH fyrri hlutann.
Aldísi kom á láni um miðbik móts og leysti Fanneyju Ingu Birkisdóttur af hólmi, en Fanney hafði verið á láni hjá FH fyrri hlutann.
Aldís lék níu leiki með FH í sumar, hélt hreinu sex sinnum og fékk einungis á sig fjögur mörk.
Aldís er uppalin á Snæfellsnesi og skipti yfir í Val frá Víkingi Ólafsvík undir lok árs 2019.
Hún á að baki átta leiki fyrir unglingalandsliðin, síðast spilaði hún tvo æfingaleiki með U18 í júní.
Athugasemdir