Fotbolti.net
31.10.22 - 16:49
Elvar Geir Magnússon

Pogba ekki með á HM (Staðfest)

Paul Pogba.

Paul Pogba.

Canon

Mynd: Getty Images

Netgíró
Miðjumaðurinn Paul Pogba mun missa af HM í Katar vegna meiðsla. Umboðsmaður hans, Rafaela Pimenta, staðfesti þetta við fjölmiðla í dag.

Pogba, sem gekk aftur í raðir Juventus frá Manchester United í sumar, var lykilmaður í franska liðinu þegar það vann HM 2018.

Frakkland er í riðli með Ástralíu, Danmörku og Túnis á HM.

Pogba hefur ekki getað spilað neitt fyrir Juventus eftir endurkomuna vegna meiðsla. Hann meiddist á hné á undirbúningstímabilinu og svo kom bakslag í endurhæfingu hans á æfingasvæðinu.

Þetta er högg fyrir miðsvæði franska landsliðsins en áður var það staðfest að N'Golo Kante yrði ekki með á mótinu vegna meiðsla.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.