Fotbolti.net
31.10.26 - 10:28
Brynjar Ingi Erluson

Þór kveður Affi - „Einn besti erlendi leikmaður sem hefur spilað fyrir félagið“

Yann Emmanuel Affi

Yann Emmanuel Affi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórsarar hafa kvatt Fílabeinsstrendinginn Yann Emmanuel Affi eftir tvö tímabil hjá félaginu, en frá þessu var greint í tilkynningu frá Þór í dag.
Affi, sem er þrítugur miðvörður, kom til Þórs í byrjun síðasta árs eftir að hafa leikið um árabil í Hvíta-Rússlandi.

Hann átti frábært fyrsta tímabil með Þórsurum og var meðal annars valinn í lið ársins í Lengjudeildinni hér á Fótbolti.net þegar Þórsarar fögnuðu deildarmeistaratitlinum og tryggðu sér sæti í Bestu deildinni á ný.

Varnarmaðurinn lék 22 leiki á nýafstöðnu tímabili þegar Þórsarar tryggðu sér áframhaldandi sæti í Bestu deildinni, en nú kveður hann félagið eftir tvö farsæl tímabil.

„Magnaður leikmaður sem setti mikinn svip á klúbbinn okkar á þessum tveimur árum. Margar góðar minningar og hann kveður okkur sem einn besti erlendi leikmaður sem hefur spilað fyrir félagið. Takk fyrir okkur Affi,“ segir í tilkynningu Þórs um Affi.


Þór kveður Affi - „Einn besti erlendi leikmaður sem hefur spilað fyrir félagið“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.