Stefán Þór Pálsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt ÍR eftir tvö ár í herbúðum Víkings R.
Hinn 21 árs gamli Stefán hóf meistaraflokksferil sinn með ÍR í 1. deildinni árið 2011 en ári síðar samdi hann við Breiðablik.
Hinn 21 árs gamli Stefán hóf meistaraflokksferil sinn með ÍR í 1. deildinni árið 2011 en ári síðar samdi hann við Breiðablik.
Árið 2013 skoraði Stefán tíu mörk í 1. deildinni á láni hjá Grindavík. Árið 2014 var Stefán í láni hjá KA en hann gekk síðan til liðs við Víking.
Stefán hefur spilað í fremstu stöðunum á vellinum á ferli sínum en hann mun nú aðstoða ÍR í baráttunni í Inkasso-deildinni í sumar.
Stefán gæti spilað í ÍR treyjunni á nýjan leik þegar liðið mætir Fylki í Reykjavíkurmótinu á morgun.
Athugasemdir