Ítalski landsliðsþjálfarinn Antonio Conte hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa verið vitorðsmaður að hagræðingu leiks Siena og Albinoleffe í ítölsku B-deildinni árið 2011, þegar Conte þjálfaði Siena.
Conte hættir með ítalska landsliðið eftir EM í sumar og tekur við Chelsea í enska boltanum þar sem hans bíður risastórt verkefni.
Conte hættir með ítalska landsliðið eftir EM í sumar og tekur við Chelsea í enska boltanum þar sem hans bíður risastórt verkefni.
Þetta eru því góðar fréttir fyrir Chelsea, en Conte átti yfir höfði sér hálfs árs bann hefði hann verið fundinn sekur.
Conte hefur alla tíð neitað sök og var sýknaður vegna skorts á sönnunargögnum.
Athugasemdir