Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   fim 21. maí 2015 07:00
Magnús Már Einarsson
Rafa Benitez orðaður við Real Madrid
Á leið í spænska boltann á ný?
Á leið í spænska boltann á ný?
Mynd: Getty Images
Rafa Benítez, þjálfari Napoli, hefur óvænt verið orðaður við þjálfarstöðuna hjá Real Madrid.

Ítalskir fjölmiðlar greindu frá því í gærkvöldi að Benítez sé nálægt því að ná samningum við Real Madrid.

Carlo Ancelotti gæti misst starf sitt hjá Real í sumar eftir að hafa endað tímabilið án titils.

Benítez hefur einnig verið orðaður við West Ham að undanförnu en útlit er fyrir að hann sé á förum frá Napoli.

Benítez er 55 ára gamall en hann hóf þjálfaraferil sinn sem þjálfari unglinga og varaliðs Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner