Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   fös 22. maí 2015 11:17
Elvar Geir Magnússon
Falcao segir nýja klippingu merki um breytingar
Mynd: Getty Images
„Breytingar eru aldrei auðveldar en það koma stundir þar sem þú þarft að breyta," skrifaði Radamel Falcao á samskiptamiðla við mynd af sér með nýja klippingu.

Þessi kólumbíski sóknarmaður hefur átt erfitt tímabil með Manchester United þar sem hann er á láni frá Monaco.

United lék sinn síðasta heimaleik á tímabilinu um síðustu helgi og þótti mörgum sem Falcao væri eftir þann leik að þakka stuðningsmönnum fyrir því ljóst væri að hann væri á förum.

Nú hafa margir túlkað klippinguna og færsluna um breytingar sem staðfestingu á því að Falcao verði ekki í búningi United á næsta tímabili.

Falcao hefur verið orðaður við mörg lið og ýmsir telja að Ítalía verði hans næsti viðkomustaður á ferlinum.

Hér að neðan má sjá Falcao með nýju klippinguna.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner