,,Þetta var mjög erfitt fyrir okkur. Andstæðingar okkar vildu ekki spila. Þeir beittu bara löngum boltum og börðust. Þetta er öðruvísi menning,“ sagði Mariusz Rumak þjálfari Lech Poznan á fréttamannafundi eftir 1-0 tap liðsins gegn Stjörnunni í Evrópudeildinni í kvöld.
,,Gervigrasið er ekki gott fyrir okkur því hraðinn á boltanum er ekki nægilega góður. Mér fannst við samt eiga að vinna í dag. Við fengum mörg færi á meðan andstæðingar okkar fengu bara 1-2 færi. Þeir sköpuðu sér ekkert sjálfir og markið þeirra kom eftir barnarleg mistök hjá okkur.“
Lech Poznan sigraði Nomme Kalju frá Eistlandi í annarri umferðinni en það lið sló Fram út í 1. umferðinni.
,,Það er mjög erfitt að segja hvort liðið er betra, Stjarnan eða Nomme Kalju. Úrslitin núna eru þau sömu og hjá okkur í fyrri leiknum gegn Nomme Kalju, þar sem við töpuðum 1-0.“
,,Ég bíð eftir næsta leik, takk,“ sagði Rumak síðan áður en hann gekk af fréttamannafundinum.
Athugasemdir