FRÉTTIR15.04.2025, 19:31
Tindastóll hefur fengið liðstyrk fyrir Bestu deild kvenna í sumar. Tveir leikmenn frá Val eru mættar á Krókinn á láni.
Hrafnhildur Salka, sem er fædd árið 2008, lék tíu leiki með Stjörnunni í deild og bikar sumarið 2023. Hún hefur þá verið lánuð til HK síðustu tvö sumur en hún var keypt til Vals frá Stjörnunni í vetur.
FRÉTTIR15.04.2025, 13:30
Fyrrum landsliðskonan Sif Atladóttir hefur fengið félagaskipti í Víking og getur því spilað með liðinu í sumar.
Sif greindi frá því eftir sumarið 2023 að skórnir væru komnir upp á hillu. Hún á frábæran feril þar sem hún lék lengi í atvinnumennsku og spilaði hún þá 90 landsleiki fyrir Íslands hönd.
FRÉTTIR15.04.2025, 06:00
KFA hefur sótt tvo sóknarsinnaða leikmenn fyrir komandi átök í 2. deild karla en það eru þeir Bayo Mbaen og Javier Montserrat.
FRÉTTIR14.04.2025, 18:45
Brasilíska félagið Santos hefur staðfest brottrekstur þjálfarans Pedro Caixinha eftir aðeins fjóra mánuði í starfi.
FRÉTTIR14.04.2025, 15:03
KA tilkynnti í dag að danski miðjumaðurinn Marcel Römer væri genginn í raðir félagsins. Fótbolti.net greindi frá viðræðunum við Römer í síðustu viku.
Römer er 33 ára sem kemur til KA frá Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni en þar var hann fyrirliði.
<i>„Það er ljóst að það er mikil styrking að fá Rømer í lið okkar en hann hefur leikið rúmlega 250 leiki í efstu deild í Danmörku og hefur verið leiðtogi í sterku liði Lyngby,"</I> segir í tilkynningu KA.
FRÉTTIR14.04.2025, 07:00
Egill Otti Vilhjálmsson er genginn til liðs við Fjölni á láni frá Fram.
Egill er fæddur árið 2004 og er uppalinn hjá Fram. Hann spilaði sinn fyrsta leik árið 2023 en hann var á láni hjá Þrótti Vogum í 2. deild á síðustu leiktíð. Hann lék 6 leiki og skoraði eitt mark. Hann hefur alls leikið 22 leiki í meistaraflokki.
FRÉTTIR13.04.2025, 14:16
Spænska félagið Sevilla hefur tilkynnt um ráðningu nýs þjálfara en það fær kunnuglegt andlit aftur í brúna. Joaquin Caparros tekur við liðinu í fjórða sinn á þjálfaraferli sínum.
FRÉTTIR13.04.2025, 10:39
Spænska félagið Sevilla rak í dag þjálfarann Xavi Garcia Pimienta úr starfi.
FRÉTTIR12.04.2025, 13:58
Alfons Sampsted og Willum Þór Willumsson urðu í dag C-deildarmeistarar með Birmingham en þetta varð ljóst eftir markalaust jafntefli Wigan og Wrexham.
FRÉTTIR12.04.2025, 07:30
Sigurður Óli Guðjónsson er genginn aftur í lið við Ægi en hann kemur frá Árborg.
Sigurður hóf feril sinn á Selfossi en hann gekk til liðs við Ægi árið 2019 og spilaði þar í þrjú ár áður en hann gekk til liðs við Árborg.
FRÉTTIR12.04.2025, 06:00
Markvörðurinn Ómar Castaldo er búinn að skrifa undir samning við Reyni Sandgerði og mun spila með liðinu í 3. deild í sumar.
Ómar er fæddur árið 2001 en hann lék 14 leiki með Víking Ólafsvík í 2. deild síðasta sumar. Hann gekk til liðs við Víking eftir eitt ár á Akureyri þar sem hann lék fimm leiki með Þór.
FRÉTTIR11.04.2025, 08:57
Grótta hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir tímabilið en Húsvíkingurinn Hulda Ösp Ágústsdóttir er gengin í raðir félagsins frá Víkingi R.
FRÉTTIR11.04.2025, 08:30
Lengjudeildarlið Njarðvíkur hefur fengið Davíð Helga Aronsson á láni frá Víkingi R. og má hann spila með liðinu þegar það mætir BF 108 í Mjólkurbikarnum í kvöld.
FRÉTTIR11.04.2025, 07:33
Liverpool staðfesti í morgun að Mohamed Salah hafi framlengt samningi sínum við félagið og verði því áfram í þeirra herbúðum.
FRÉTTIR11.04.2025, 06:00
Elaina Carmen La Macchia er gengin aftur í raðir Fram frá Aftureldingu og mun því spila með Frömurum í Bestu deildinni á komandi leiktíð.
FRÉTTIR10.04.2025, 17:00
Hin bandaríska Haylee Spray er gengin til liðs við Gróttu en frumraun hennar í bláu treyjunni var í Lengjubikarleiknum við KR á dögunum. Haylee er fædd og uppalin í Texas fylki en stundaði nám í Memphis háskóla þar sem hún lék með knattspyrnuliði skólans við góðan orðstír. Þess ber að geta að Memphis hefur undanfarin ár verið talið í hópi 20-30 sterkustu háskólaliða í öllum Bandaríkjunum.
FRÉTTIR10.04.2025, 13:36
Elín Metta Jensen er komin með leikheimild með Val en liðið mætir Breiðabliki í Meistarakeppni KSÍ, leiknum um meistarar meistaranna titilinn, annað kvöld. Framherjinn hefur gert tveggja ára samning við Val og má búast við henni með Valsliðinu í sumar.
Greint var frá því fyrir rúmum mánuði að Elín Metta hefur verið að æfa með Val en hún er að koma sér af stað eftir að hafa eignast sitt fyrsta barn.
FRÉTTIR10.04.2025, 13:30
Tindastóll hefur fundið öflugan leikmann til að verja mark liðsins í Bestu deildinni í sumar. Monica Wilhelm stóð sig mjög vel í marki Tindastóls en hélt til Svíþjóðar í vetur.
Í hennar stað er mætt Genevieve Crenshaw sem hefur leikið með Boise háskólanum í Idaho. Hún vakti athygli fyrir frammistöðu sína þar og hélt oft hreinu á síðasta tímabili.
FRÉTTIR09.04.2025, 17:00
Fylkir hefur samið við þrjá leikmenn fyrir komandi sumar. Laufey Björnsdóttir og Hildur Anna Brynjarsdóttir hafa gengið í raðir félagsins.
FRÉTTIR09.04.2025, 06:00
Dalvík/Reynir hefur nælt í portúgalska sóknarmanninn Martim Cardoso en hann kemur frá Hetti/Huginn.
Cardoso er 23 ára gamall og getur spilað allar stöður fremst á vellinum.